Í Elliðaárstöð tökum við á móti nemendum á öllum skólastigum. Leiðarljós okkar í fræðslu er STEAM nálgun í námi en hún fléttar saman vísindi, tækni, verkfræði, listir og stærðfræði. Nú hafa öll pláss verið bókuð fyrir vorið 2026 en á áætlun er að 52 hópar það er um 1400 nemendur komi í heimsókn á vorönn til þess að læra um orku og vísindi á skemmtilegan hátt. Við leggjum uppúr því í Elliðaárstöð að heimsóknir séu skemmtilegar og fræðandi.
Með því að bjóða skólum í heimsókn vinnur Elliðaárstöð að því að kveikja neista og vekja áhuga nemenda og kennara á vísindum, orku og iðn- og tæknigreinum.
Til þess að fá forskot á sæluna þegar næst eru auglýstar skólaheimsóknir er hægt að skrá sig á skólavina póstlistann okkar.