Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Hugarorkan virkjuð í Meistarabúðum

5. júlí 2024
Krakkar í meistarabúðum í hugmyndavinnu með Hugmyndasmiði.

Meistarabúðir Hugmyndasmiða voru haldnar í fyrsta sinn í Elliðaárstöð í sumar og voru það Ninna Þórarinsdóttir og Svava Björk Ólafsdóttir sem héldu utan um námskeiðið í þetta skipti. Meistarabúðir er sumarnámskeið fyrir skapandi krakka á aldrinum 10-11 ára sem sem vilja læra að fá hugmyndir sem geta breytt heiminum.

Námskeiðið fór fram bæði úti og inni. Verkstæðið í gömlu rafstöðinni lifnaði við þar sem krakkarnir fengu tækifæri til að vinna með hin ýmsu tæki og tól. Einnig nýttu þau svæðið í kring, einkum Vatnsleikjagarðinn. Þar höfðu krakkarnir einstaklega gaman af því að leika sér og kynntust vel áður en þau fóru að vinna í hópum og skapa saman. Umhverfið var svo notað sem innblástur í hugmyndavinnuna en svæðið er ekki einungis náttúruparadís heldur einnig ríkt sögu tengdri orku og orkunýtingu.

Á námskeiðinu var þemað endurnýting og orka en það snerist um hugmyndavinnu og nýsköpun. Krakkarnir fengu leiðsögn um Elliðaárstöð og fræðslu um ýmsar tegundir orku. Sérstaklega var fjallað um hvernig orkan úr Elliðaánum var notuð til þess að búa til raforku. Þau lærðu einnig um einkenni hugmyndasmiða og nýsköpunarferlið, sér í lagi tengt endurnýtingu og hvernig hægt sé að nota umhverfið sem innblástur. Sérfræðingur frá Terra kom með innlögn um endurnýtingu og verðmætið í ruslinu áður en krakkarnir fengu að vaða beint í sín eigin verkefni og framkvæma.

Sköpunarferlið hófst með því að búin var til sameignleg mynd þar sem fjöldinn allur af frábærum hugmyndum komu fram en út frá þeim var krökkunum skipt í hópa og sköpunin fór á fullt. Hver hópur skipulagði verkefni sitt út frá hugmyndavinnu og byggði síðan líkan með efnivið sem fallið hefur til í starfsemi Orkuveitunnar og hefði að öðrum kosti lent í ruslinu.

Á námskeiðinu var lögð mikil áhersla á að krakkarnir sýndu fram á sjálfstæð vinnubrögð og fengju að prófa sig áfram með ýmis verkfæri og efnivið. Þetta var góður vettvangur fyrir krakkana að prófa sig áfram í verklegri vinnu en þau gátu að sjálfsögðu leitað eftir aðstoð ef þess þurfti. Þau lærðu að þróa hugmyndirnar áfram eftir því hvernig framkvæmdin gekk. Engin pressa var sett á loka útkomuna heldur var mikilvægast að reyna, prófa, skoða og byggja.

Öll sköpunarverkin voru sérsniðin að áhugasviði hvers barns. Krakkarnir voru sýnilega mikið að velta fyrir sér hvernig orka var notuð í verkefnunum. Meðal annars var búið til fótboltaspil þar sem spilað var með eigin vindorku, vatnspumpa þar sem hreyfiorkan var notuð til að sprauta vatninu upp í loft og margt fleira.

Í lok námskeiðsins vildu krakkarnir halda sýningu fyrir foreldra sína á túninu fyrir utan. Mikil ánægja var með afrakstur námskeiðsins og stoltið leyndi sér ekki bæði hjá foreldrum og börnunum. Námskeiðið vakti ekki síður gleði fyrir öll sem voru á svæðinu enda eins og Hugmyndasmiðirnir Ninna og Svava sögðu, „þá voru þetta sannarlega þrír dagar af fjöri, flæði og nýsköpun.“

Aðrar fréttir