Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Jól í dalnum

17. nóvember 2025
Jól í dalnum 2025 - opið verður alla laugardaga fram að jólum. Jólatrjáasala Hjálparsveitar skáta í Reykjavík, jólasveinar mæta á svæðið, jólaratleikur og margt fleira.
Í desember umbreytist Elliðaárstöð í jólastöð. Komið í dalinn og upplifið fallegu jólaljósin, skellið ykkur í ratleikinn Leitin að jólaorkunni, fræðist á vísindasýningunni Hjartastrengir & vatnsæðar í Gestastofunni og fáið ykkur jólakræsingar á Elliða – kaffihúsinu í hjarta dalsins.
Sérstök jóladagsskrá verður í Elliðaárstöð alla laugardaga fram að jólum í desember.

Jólatrjáasala Hjálparsveitar skáta

Jólatrjáasala Hjálparsveitar skáta í Reykjavík opnar 6. desember og verður opin fram að jólum í Elliðaárstöð við Rafstöðvarveg 14.
Þar gefst öllum tækifæri til að finna sitt fullkomna tré í jólalegri og notalegri stemningu.
  • Á virkum dögum er opið frá kl. 16:00 til 21:00
  • Um helgar er opið frá kl. 10:00 til 21:00
  • Lengri opnunartímar verða 22. og 23. desember
Í boði eru fyrsta flokks norðmannsþinur frá Danmörku og íslensk stafafura. Að auki eru í boði greinar, jólatrésfætur og útikerti.
Dagskrá

6. desember

  • Lifandi jólakveðja – opin smiðja í Gerverinu í Gestastofu Elliðaárstöðvar með Ninnu Hugmyndasmið frá kl. 13-15
  • Vísindasýningin Hjartastrengir og vatnsæðar í Gestastofunni
  • Piparkökuföndur á meðan birgðir endast í Gestastofunni
  • Leitin að jólasveinunum í Rafstöðinni – getur þú fundið alla þrettán jólasveinana í Rafstöðinni og leyst úr orðaflækjunni sem þeir hafa búið til? Jólastafir í boði fyrir klára krakka sem geta hjálpað þeim að leysa flækjuna.
  • Jólamatseðill á Elliða
  • Jólatrjáasala Hjálparsveitar skáta við Gestastofu Elliðaárstöðvar 10 – 21
Dagskrá

13. desember

  • Jólasveinar kíkja í heimsókn í Elliðaárstöð kl. 14
  • Vísindasýningin Hjartastrengir og vatnsæðar í Gestastofunni
  • Pipakökuföndur á meðan birgðir endast í Gestastofunni
  • Leitin að jólasveinunum í Rafstöðinni – getur þú fundið alla þrettán jólasveinana í Rafstöðinni og leyst úr orðaflækunni sem þeir hafa búið til? Jólastafir í boði fyrir klára krakka sem geta hjálpað þeim að leysa flækjuna.
  • Jólamatseðill á Elliða
  • Jólatrjáasala Hjálparsveitar skáta við Gestastofu Elliðaárstöðvar kl. 10-21
Dagskrá

20. desember

  • Jólatónar með Hljómfélaginu kl. 13:00 – Syngjum inn jólin í Elliðaárstöð
  • Vísindasýningin Hjartastrengir og vatnsæðar í Gestastofunni
  • Pipakökuföndur á meðan birgðir endast í Gestastofunni
  • Leitin að jólasveinunum í Rafstöðinni – getur þú fundið alla þrettán jólasveinana í Rafstöðinni og leyst úr orðaflækunni sem þeir hafa búið til? Jólastafir í boði fyrir klára krakka sem geta hjálpað þeim að leysa flækuna.
  • Jólamatseðill á Elliða
  • Jólatrjáasala Hjálparsveitar skáta við Gestastofu Elliðaárstöðvar kl. 10-21
Dagskrá

Aðrar fréttir