Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

STEAM skólaheimsóknir í Elliðaárstöð. Opið fyrir bókanir.

12. febrúar 2026
Nemendur í Barnaskóla Garðabæjar heimsækja Elliðaástöð

Viltu fræðast um orku og vísindi? Í Elliðaárstöð tökum við á móti nemendum á öllum skólastigum. Leiðarljós okkar í fræðslu er STEAM nálgun í námi en hún fléttar saman vísindi, tækni, verkfræði, listir og stærðfræði.

Heimsókn í Elliðaárstöð einkennist af leikgleði, orku og sköpunarkrafti en við leggjum áherslu á að auka orkulæsi gesta á skemmtilegan hátt.

Við höfum opnað fyrir bókanir skólahópa á vorönn 2026. Veldu fræðsluleið og bókaðu heimsókn fyrir hópinn þinn.

 

Komdu í heimsókn

Skoðaðu fræðsluúrvalið og taktu frá tíma fyrir nemendahópinn þinn!

Bóka heimsókn

Elliðaárstöð er leiðandi í STEM & STEAM menntun

Með því að bjóða skólum í heimsókn, vinnur Elliðaárstöð að því að kveikja neista og vekja áhuga nemenda og kennara á vísindum, orku og iðn- og tæknigreinum.

Meira um STEAM

Verið velkomin í Elliðaárstöð

Elliðaárstöð er leiðandi í orkulæsi, STEM & STEAM og vísindamiðlun á Íslandi.

Frá árinu 2022 hafa um 8000 nemendur lært um orku og hvernig veitukerfin virka í borginni.

Skólaheimsóknir eru í boði Orkuveitunnar.

Aðrar fréttir