Um 200 steplur og stálp heimsóttu Elliðaárstöð í síðustu viku í tilefni af deginum Stelpur, stálp og tækni sem Háskólinn í Reykjavík heldur utan um.
Í Elliðárstöð komu saman öll fyrirtæki Orkuveitunnar þar sem þau kynntu hin fjölbreyttu og mikilvægu störf sem halda borginni okkar gangandi. Hvort sem það voru forritarar sem nýta gervigreind í starfi, verkefnastjórar sem halda utan um stór verkefni, iðnaðarfólk sem framkvæma mikilvægar viðgerðir og uppsetningu kerfa eða vísindamenn sem stunda fjölbreyttar rannsóknnir, öll buðu þau uppá skemmtilega fræðslu og verkefni fyrir nemana.
Í turninum á gömlu straumskiptistöðinni bauð Ljósleiðarinn nemendum að þjálfa gervigreindar módel við að þekkja ólíka hluti og kynnti þannig hvernig vélnám er nýtt í ýmis verkefni. Á Veitutorgi kynntu Veitur hin ýmsu störf sem eru unnin þar en stelpurnar fengu að spjalla við unga konu sem starfar sem pípari, prófuðu að rafsjóða, spjölluðu um notkun gervigreindar og lærðu af reyndu teymi rafveitunnar.
Fyrir utan Gestastofuna buðu Carbfix og Rannsókna- og nýsköpunardeild Orkuveitunnar þeim að prófa ýmis mælitæki sem notuð eru í rannsóknum þeirra en það vakti mikla ánægju meðal nemendanna. Loks í Rafstöðunni kynntu verkefnastjórar Orku náttúrunnar sín störf og skoruðu á nemana að byggja eins háan turn og hægt var úr pasta og límbandi. Til þess að leysa þetta þurftu þær að vinna saman og jafnvel skipa verkefnastjóra í verkið. Hæsti turn dagsins voru rúmir 73 cm.
100 stelpur og stálp komu í heimsókn fyrir hádegi og svo aðrar 100 eftir hádegi. Dagurinn fór vonum fram úr en sólin skein og stemmingin var áþreifanleg. Elliðaárstöð iðaði af lífi þar sem öll fyrirtæki Orkuveitunnar komu saman og fræddu ungar og upprenandi stelpur og stálp um hvað framtíð þeirra gæti haft upp á að bjóða.