STRAUMUR í Elliðaárdal með Selásskóla

Elliðaárstöð er í samstarfi við nokkra grunnskóla í nágrenni Elliðaárdals. Markmið Elliðaárstöðvar í fræðslu er að fræða ungmenni og gesti um vísindi, orku og auðlindir. Við vekjum fólk til umhugsunar um veiturnar okkar, rafveituna, vatnsveituna, hitaveituna, fráveituna og gagnaveituna.
STRAUMUR í Elliðaárdal er STEAM verkefni
Þróunarverkefnið STRAUMUR í Elliðaárdal er samstarfsverkefni Elliðaárstöðvar og Selásskóla. Markmið verkefnisins er að fræða nemendur um STRAUM í víðu samhengi. Nemendur læra um straum í sínu nærumhverfi og vinna að STEAM og STREAM verkefnum sem samþætta vísindi (e. Science), tækni (e. Technology), verkfræðihugsun (e. Engineering), listir (e. Arts) og stærðfræði (e. Mathematics) auk skemmtunar og afþreyingar (e. Recreation). Lestu meira um STEAM og STREAM menntun hér.
Reynsluboltar í Selásskóla
Í Selásskóla hefur skapast hefð fyrir sköpunar- og tæknismiðjum og er unnið á margvíslegan hátt að tækni og sköpun í skólastarfinu. Skólinn tekur þátt í Austur Vestur verkefninu ásamt Ingunnarskóla, Vesturbæjarskóla og Háskóla Íslands og er því mikill fengur fyrir Elliðaárstöð að fá kennara og nemendur Selásskóla í samstarf.
Verkefnið STRAUMUR í Elliðaárdal er þróað í samstarfi við kennara og nemendur 6. bekkjar í Selásskóla, en það eru Kristín Óskarsdóttir og Sunneva Jörundsdóttir kennarar auk Margrétar Hugadóttur, fyrir hönd Elliðaárstöðvar sem leiða verkefnið.

Allskonar STRAUMUR
Í upphafi verkefnis könnuðum við forþekkingu nemenda um STRAUM. Krakkarnir veltu fyrir sér orðinu STRAUMUR, hvað það þýðir og hvernig STRAUM við þekkjum. Við notuðum meðal annars sýndartilraunir um straum.
Stýrum tölvu með hlutum í umhverfinu
Krakkarnir prófuðu MakeyMakey sem er lítil tæki sem breytir allskonar hlutum í stjórntæki þegar það er tengt við tölvu. Hægt er að nota hvað sem er til að stjórna tölvunni svo lengi sem hluturinn leiðir rafmagn. Krakkarnir fiktuðu og gerðu tilraunir á sjálfum sér, ávöxtum, álpappír og hefðbundnum hlutum sem finnast í skólastofunni líkt og skærum, blýöntum, húsgögnum og fleiru. Krakkarnir mæla með þessu og við bendum skólum í Reykjavík á að hægt er að leigja bekkjarsett af MakeyMakey án kostnaðar í Búnaðarbanka Mixtúru, sem er sköpunar- og upplýsingatækniver Skóla og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.

Lærum um rafstraum í gegnum tónlistarsköpun
Næsta skref var að búa til hljóðfæri úr hlutum í umhverfinu sem stýrðu tölvu. Nemendur sömdu ljóð um straum og sömdu lag. Afurðin var því frumsamið rapp lag við frumsamið ljóð.
Framundan
Verkefnið er nemendamiðað og hafa nemendur áhrif á hvaða hátt verkfefnið þróast. Næst á dagskrá er tölfræði og málfræðiverkefni í Elliðaárdal sem nefnist Straumur í ramma. Við hlökkum til að segja ykkur frá hvernig þetta skemmtilega verkefni þróast.
Fleiri geta nýtt sér verkefnin
Stefnt er að því að miðla þeim verkefnum sem þróuð verða í samstarfinu á vef Elliðaárstöðvar og verður öllum skólum frjálst að nota þau og aðlaga að sínum þörfum.
Kennarar 6. bekkjar í SelásskólaVið erum að gera tilraunir saman.
Framundan
Verkefnið er nemendamiðað og hafa nemendur áhrif á hvaða hátt við þróum verkefnið áfram. Næsta verkefni verður tölfræði og málfræðiverkefni í Elliðaárdal sem nefnist Straumur í ramma. Við hlökkum til að segja ykkur frá hvernig þetta skemmtilega verkefni þróast.
Fleiri geta nýtt sér verkefnin
Stefnt er að því að miðla þeim verkefnum sem þróuð verða í samstarfinu á vef Elliðaárstöðvar og verður öllum skólum frjálst að nota þau og aðlaga að sínum þörfum.