Vatnið í fyrirrúmi í fyrsta Auðlindahring ársins

Það voru hressir hjólagarpar sem lögðu af stað frá Elliðaárstöð í fyrsta Auðlindahring sumarsins, Vatnsveituhring. Lagt var af stað frá Elliðaárstöð og voru alls fimm Auðlindaleiðtogar með í för, Þráinn Friðriksson, Olgeir Örlygsson, Dagrún Ellen Árnadóttir, Bryndís Björnsdóttir og Pétur Wilhelm Jóhannsson.
Boðið var að grípa sér samlokur, orkustykki og safa í Elliðaárstöð áður en lagt var af stað. Hjóluð var 23 km leið um vatnsverndarsvæði í Heiðmörk og nágrenni. Rætt voru meðal annars áform Veitna um breytingar á útivistarsvæði Heiðmerkur með tilliti til verndun vatnsins. Þar sem bætt verður aðgengi og aðstöðu fyrir útivist í samvinnu við sveitarfélögin og almenning. Þannig verður vel hægt að samræma útivist og vatnsvernd í Heiðmörk til að tryggja íbúum höfuðborgarsvæðisins hreint vatn til framtíðar.
Við hlökkum til að taka á móti fleiri hjólagörpum í næsta Auðlindahring sem fram fer þann 18. ágúst næstkomandi. Nánari dagskrá verður auglýst síðar.
Vatnsveituhringurinn var styrktur af verkefninu LIFE ICEWATER.