Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

80 veiðimenn spreyttu sig við silunginn í vorveiðinni í ár

30. júní 2023

Fjóra föstudaga í maí og júní hefur verið líf og fjör við Elliðaárnar.

Um 80 manns reyndu sig við silunginn í ár en Elliðaárstöð, Stangveiðifélag Reykjavíkur og Orkuveita Reykjavíkur standa fyrir vorveiði í Elliðaám á silungasvæðinu rétt neðan við Elliðavatnsstífluna.

Í ár tóku fjórir hópar þátt í vorveiðinni, nemendur í 9. bekk í Klettaskóla, Ungmenni í frístundastarfi í Hinu húsinu, hópur frá Styrktarfélaginu Ás og fjölskyldur frá Einstökum börnum.

Ásgeir Helgason réttir ungum veiðimanni fenginn.

Ásgeir réttir ungum veiðimanni fenginn. Frétt á Stöð 2 um veiði Einstakra barna í Elliðaánum 2023.

Vorveiði sem þessi hefur verið í boði frá árinu 2009 og hefur þessi viðburður fest sig vel í sessi. SVFR og OR láta í té veiðidaga, útvega veiðarfæri og nesti sem og aðstoða við veiðina.
Veiðin gengur alltaf vel og oftar en ekki er bitið á agnið.

Ásgeir og Ingi Þór, veiðileiðsögumenn í vorveiði 2023.

Ingi Þór Hafsteinsson fyrrum vélstjóri Elliðaárstöðvar (til hægri) hefur haft umsjón með vorveiðinni um árabil og hefur hlotið viðurkenningar fyrir. Nú bættist Ásgeir Helgason (til vinstri) í hóp umsjónarmanna, en hann er umsjónarmaður húsnæðis og svæðis í Elliðaárstöð.

Aflaklær

Við óskum öllu veiði fólki gleðilegs veiðisumars og þökkum hópunum fyrir komuna.

Aðrar fréttir