Ómsveppir í Árhólmanum
Kristín María Sigþórsdóttir og Friðrik Steinn Friðriksson eru hönnuðir álsveppa sem komið hefur verið fyrir í skógarrjóðri í hólmanum. Sveppatínsla í skógum er núvitundarathöfn sem má líkja við skógarbað.
Ómsveppir
Þú getur spilað á Ómsveppina og látið þá gefa frá sér falleg hljóð í skóginum sem falla vel að skóginum og minna okkur á að staldra við, skoða náttúruna með nýjum augum og njóta.
Hlustaðu á hönnuðina segja frá verkinu.
Skapaðu hljómverk
Finndu trjágrein og spilaðu. Njóttu þess að hlusta á ómþýða tóna í jafnvægi við fuglasöng og niðinn í ánni.
Maðurinn í skóginum – Gönguleið.