
Heimili veitna
Heimili veitna er fræðslusýning í gamla stöðvarstjórahúsinu. Gestir fræðast um veitukerfin á skemmtilegan hátt. Hér eru leyndardómar veitnanna sem leynast undir gólfum og inni í veggjum heimilisins afhjúpaðir og hið ósýnilega gert sýnilegt.
Einnig er hægt að bóka leiðsögn fyrir hópa um sýninguna gegn vægu gjaldi.
Bóka fyrir hóp
Rafstöðin
Rafstöðin var byggð árið 1921 og er fyrsta rafstöð Reykjavíkur. Þessi gamla vatnsaflsvirkjun olli miklum straumhvörfum í lífi Reykvíkinga á sínum tíma. Hér er hægt að skoða upprunalegar aflvélar og upplifa rafstöðina.
Einnig er hægt að bóka leiðsögn um stöðina fyrir hóp gegn vægu gjaldi.
Bóka fyrir hóp