Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

#

Auðlindahringir 2025 – Rafveituhringur

  • Coins Aðgangur ókeypis
  • Calendar 17. september 2025
  • Clock 17:00
  • Location Pin Sjá á korti

🚵🏼‍♀️ Auðlindahringur hjólaður í fimmtánda sinn frá Elliðaárstöð í tilefni af evrópskri samgönguviku.

Komdu með í Rafveituhring sem verður 15. Auðlindahringurinn sem hjólaður er frá Elliðaárstöð. Auðlindahringir Elliðaárstöðvar er geysivinsæl viðburðaröð, þar sem auðlindasérfræðingar Orkuveitunnar leiða þátttakendur í hjólaleiðsögn um auðlindir og innviði höfuðborgarsvæðisins.

Vissir þú að í dreifikerfi Veitna eru yfir 3000 km af rafstrengjum og vel yfir 1000 spennar sem spanna spennustig frá 230V upp í 132kV, allt tengt saman í flókið net til að koma raforku til viðskiptavina?

⚡️ 17. september bjóðum við upp á Rafveituhringinn sem er ca. 25 km hjólahringur, mestmegnis á malbiki og möl. Skoðað verða lykil mannvirki í flutning og dreifingu rafmagns og fræðst um það hvernig raforka kemst frá virkjun til viðskiptavina.

⚡️ Þátttakendur eru beðnir um að mæta á fjallahjólum/ malarhjólum eða raffjallahjólum kl. 17:00 við Elliðaárstöð, Rafstöðvarvegi 6.

⚡️ Sérfræðingar hjá Veitum leiða hjólaferðina og miðla áhugaverðum fróðleik og sögum.

⚡️ Þátttaka er ókeypis og boðið verður upp á léttar veitingar á leiðinni.

⚡️ Heppinn þátttakandi fær gjafabréf frá hjólaversluninni TRI.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Aðrir viðburðir