Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

#

Fjölskyldusmiðjur Hugmyndasmiða í Elliðaárstöð

  • Coins 2.500 kr.
  • Calendar 13. september - 6. desember 2025
  • Clock 00:00
  • Location Pin Sjá á korti

Fjölskyldusmiðjur Hugmyndasmiða

Ninna hugmyndasmiður tekur á móti skapandi krökkum á aldrinum 6-12 ára og foreldrum þeirra og leggur fyrir mismunandi hönnunaráskoranir á Verkstæði Hugmyndasmiða í Elliðaárstöð. Þátttakendur fá tækifæri til að virkja sköpunarkraftinn og efla samvinnu fjölskyldunnar. Unnið verður með endurnýttan efnivið sem við björgum til að skapa eitthvað alveg nýtt og spennandi í gegnum smíðar, leiki, föndur, tilraunir og prófanir. Verkstæðið er staðsett í einstöku rými gömlu rafstöðvarinnar.

Börn sem taka þátt greiða 2500kr en frítt er fyrir fullorðna fylgifiska. Notaðu afsláttarkóðann „Fjolskylduafslattur“ ef fleiri en eitt barn er í fjölskyldunni.

Dagskrá haust 2025!

Laugardaginn 13. sept kl 10-12 – Skógarverur lifna við
Laugardaginn 4. október kl 10-12 – Hönnum hús
Laugardaginn 22. nóvember kl 10-12 – Höfum hátt
Laugardaginn 6. des kl 10-12 – Lifandi jólakveðja

Aðrir viðburðir