Heimsmeistaramót landsliða í bakgarðshlaupum
- Aðgangur ókeypis
- 15. október - 17. október 2022
- 12:00
- Sjá á korti
Þann 15. október mun Ísland ásamt 37 öðrum löndum um allan heim keppa, í hverju landi fyrir sig, um heimsmeistaratitil landsliða í bakgarðshlaupum. 15 af bestu bakgarðshlaupurum hvers lands keppa saman sem lið og það lið sem fer flesta bakgarðshringi sigrar. Með tilkomu Bakgarðshlaupa Náttúruhlaupa hefur Ísland unnið sér inn þátttökurétt á heimsmeistaramótinu og veitt hlaupurum hér á landi tækifæri á að komast í íslenska landsliðið.
Mótið hefst laugardaginn 15. október kl. 12:00 í Elliðaárstöð, Elliðaárdal. Mætum á svæðið og hvetjum okkar fólk.
Nánari upplýsingar má finna hér.