Smástundarsýning: Hjartastrengir og vatnsæðar
-
Aðgangur ókeypis
-
16. október - 31. janúar 2025
-
09:00
-
Sjá á korti
Hvernig virkar borgin okkar á bak við tjöldin? Á þessari skemmtilegu vísindasýningu kynnist þið ferðalagi orkunnar og lærið um orku og vísindi. Sýningin er ætluð börnum á öllum aldri.
Á sýningunni okkar Hjartastrengir & vatnsæðar leikum við okkur með að sýna hliðstæður í veitukerfi borgarinnar og líffærakerfum mannsins. Við sýnum undur veitukerfanna, hvernig orkan flæðir um æðar borgarinnar og skoðum hvaðan orkan kemur og hvernig við notum hana. Á sýningunni getur þú breytt morgunmatnum þínum í ljós, búið til þína eigin jarðhitaofurhetju, hlustað á ferðalag Diddu dropa, Völlu varma, Raffa rafeindar og Kúksa kúks. Svo er tilvalið að slaka á í Kúkakósý með góða bók eða leika í leikrýminu með skapandi STEAM leikföng.
Á sýningunni Hjartastrengir & vatnsæðar færð þú að upplifa innviði á nýjan hátt – þar sem hjarta borgarinnar slær í takt við hjarta mannsins.
Sýningin stendur til 31. janúar 2026. Frítt inn.
Frá 17. október er sýningin opin alla virka daga frá kl. 9-16:30.
Sérstakar laugardagsopnanir framundan: Opið 11-16 laugardaginn 25. október. Opið 13-16 laugardagana 15. nóvember, 6. desember, 13. desember og 20. desember.
Sýningin er unnin af Margréti Hugadóttur, leiðtoga vísindamiðlunar í Elliðaárstöð og Elísabetu Jónsdóttur, sýningarstjóra Elliðaárstöðvar.
//
Energy flows through the city’s invisible veins. Water, electricity, and sewage move to and from us, nourishing, warming, and connecting us. In the exhibition Wired for Life, you will experience infrastructure in a whole new way, where the human heart beats in rhythm with the heart of the city at Elliðaárstöð.
Alongside the exhibition, Elliðaárstöð is releasing new educational material called Ósýnilegt verður sýnilegt (The Invisible Becomes Visible), which explores flow of energy through the utility systems. The material includes online educational content, posters, and themed booklets.
We hope visitors will discover the city’s infrastructure, energy, and utility systems in a fresh and creative way—and have fun in the process.
The exhibition is curated by Margrét Hugadóttir, Head of Science Communication at Elliðaárstöð, and Elísabet Jónsdóttir, Exhibition Director at Elliðaárstöð.
The exhibition opens on October 16th at 4:30 PM and runs until January 31st, 2026. From October 17th, the exhibition is open every weekday from 9:00 AM to 4:30 PM