Hjólahátíð fjölskyldunnar í Elliðaárstöð
-
Aðgangur ókeypis
-
23. apríl 2026
-
11:00
-
Sjá á korti
Sumardaginn Fyrsta höldum við stóra Hjólahátíð í Elliðaárstöð.
Um leið kynnum við í fyrsta skipti nýtt átak í umferðaröryggi hjólandi fólks, „Gul Hjól“, sem unnið er í samstarfi við Samgöngustofu, sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, FÍB og fleiri stuðningsaðila.
Komum öll hjólandi í Elliðaárstöð þar sem ýmislegt skemmtilegt verður í boði:
- Þrautabraut fyrir krakkana (6-12 ára)
- Krónuhjólið verður á staðnum
- Ókeypis ástandsskoðun á reiðhjólum gesta
- Fræðsla um ýmislegt tengt öryggi hjólandi vegfarenda:
- Hvernig stillum við hjólahjálminn rétt?
- Hvernig gefur hjólandi fólk stefnumerki?
- Góð ráð um endurskin og ljósabúnað
- Kyrrstöðukeppni (e. Track Stand)
- Fjölskylduhjólið prófað
- Listasmiðja, skreytum hjólin okkar vel
- Samhjól, skrúð“ganga“ hjólanna í dalnum