Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

#

Höfum hátt – Fjölskyldusmiðja

VERKSTÆÐI HUGMYNDASMIÐA Í GERVERINU Í ELLIÐAÁRSTÖÐ

🛠 Fjölskyldusmiðja þar sem við hönnum og smíðum hljóðfæri 🛠

Ninna hugmyndasmiður tekur á móti skapandi krökkum á aldrinum 6–12 ára og foreldrum þeirra á Verkstæði Hugmyndasmiða í Elliðaárstöð.

Þátttakendur fá tækifæri til að virkja sköpunarkraftinn, efla samvinnu fjölskyldunnar og læra að nota endurnýttan og náttúrulegan efnivið sem við björgum. Við uppvinnum og breytum hugmyndum í hluti með smíðum, leik og tilraunum.

Í þessari smiðju er þemað „höfum hátt“ 🎺 – þar sem við nýtum hluti sem á að henda og breytum þeim í frumleg hljóðfæri.

Það er frítt inn á smiðjuna fyrir fjölskylduna og ekki þörf á að skrá sig, bara mæta! Gert er ráð fyrir fullorðnum fylgifiskum með öllum skapandi krökkum.

💡Hlökkum til að sjá unga hugmyndasmiði💡

Nokkur atriði sem gott er að hafa í huga á verkstæðinu:
📌 Mætið í fatnaði sem hentar verkstæðisvinnu
📌 Við munum vinna með verkfæri og mikilvægt er að allir fari varlega
📌 Börnin eru á ábyrgð fullorðinna fylgifiska

Verkstæðið er styrkt af VOR Vísindasjóði Orkuveitunnar.

Dagskráin á Verkstæðinu heldur áfram fram að sumri:
21. febrúar kl 13-15 – Verum og gerum
21. mars kl 13-15 – Höfum hátt
23. apríl (sumardagurinn fyrsti) kl 13-15 – Hönnum fuglahús
10. maí (Hönnunarmars) kl 13-15 – Öll í bátana

👉 Næsta sumar verður boðið upp á Meistarabúðir, sumar-námskeið þar sem þátttakendur fá að kafa enn dýpra í heim hugmyndasmiða

Aðrir viðburðir