Jól í dalnum – 13. desember
-
Aðgangur ókeypis
-
13. desember 2025
-
13:00
-
Sjá á korti
Í desember umbreytist Elliðaárstöð í jólastöð. Komið í dalinn og upplifið fallegu jólaljósin, skellið ykkur í ratleikinn Leitin að jólaorkunni, fræðist á vísindasýningunni Hjartastrengir & vatnsæðar í Gestastofunni og fáið ykkur jólakræsingar á Elliða – kaffihúsinu í hjarta dalsins![]()
![]()
Sérstök jóladagsskrá verður í Elliðaárstöð alla laugardaga fram að jólum í desember.
Söngur á aðventu – Borgarkórinn, blandaður kór núverandi og fyrverandi starfsmanna Reykjavíkurborgar, flytur vel valin jólalög á útisvæði Elliðaárstöðvar. Kórstjóri er Aron Axel Cortes kl.13:30
Jólasveinar kíkja í heimsókn í Elliðaárstöð kl. 14:00
Vísindasýningin Hjartastrengir og vatnsæðar í Gestastofunni
Piparkökuföndur á meðan birgðir endast í Gestastofunni
Leitin að jólasveinunum í Rafstöðinni – getur þú fundið alla þrettán jólasveinana í Rafstöðinni og leyst úr orðaflækunni sem þeir hafa búið til? Jólastafir í boði fyrir klára krakka sem geta hjálpað þeim að leysa flækjuna.
Jólamatseðill á Elliða
Jólatrjáasala Hjálparsveitar skáta við Gestastofu Elliðaárstöðvar kl. 10-21