Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

#

Jól í dalnum – 20. desember

Í desember umbreytist Elliðaárstöð í jólastöð. Komið í dalinn og upplifið fallegu jólaljósin í Elliðaárstöð, skellið ykkur í ratleikinn, Leitin að jólaorkunni, fræðist á vísindasýningunni Hjartastrengir & vatnsæðar í Gestastofunni og fáið ykkur jólakræsingar á Elliða – kaffihúsinu í hjarta dalsins🎅⛄

Sérstök jóladagsskrá verður í Elliðaárstöð alla laugardaga fram að jólum í desember.

Dagskrá 20. desember:

👉 Jólatónar með Hljómfélaginu kl. 13:00 Syngjum inn jólin í Elliðaárstöð
👉 Vísindasýningin Hjartastrengir og vatnsæðar í Gestastofunni
👉 Piparkökuföndur á meðan birgðir endast í Gestastofunni
👉 Leitin að jólasveinunum í Rafstöðinni – getur þú fundið alla þrettán jólasveinana í Rafstöðinni og leyst úr orðaflækunni sem þeir hafa búið til? Jólastafir í boði fyrir klára krakka sem geta hjálpað þeim að leysa flækuna.
👉 Jólamatseðill á Elliða
👉 Jólatrjáasala Hjálparsveitar skáta við Gestastofu Elliðaárstöðvar kl. 10-21

Hlökkum til að sjá ykkur í desember🎄

Aðrir viðburðir