Jól í dalnum – 6. desember
-
Aðgangur ókeypis
-
6. desember 2025
-
13:00
-
Sjá á korti
Í desember umbreytist Elliðaárstöð í jólastöð. Komið í dalinn og upplifið fallegu jólaljósin, skellið ykkur í ratleikinn Leitin að jólaorkunni, fræðist á vísindasýningunni Hjartastrengir & vatnsæðar í Gestastofunni og fáið ykkur jólakræsingar á Elliða – kaffihúsinu í hjarta dalsins![]()
![]()
Sérstök jóladagsskrá verður í Elliðaárstöð alla laugardaga fram að jólum í desember.
Lifandi jólakveðja – opin smiðja í Gerverinu í Gestastofu Elliðaárstöðvar með Ninnu Hugmyndasmið frá kl. 13-15
Vísindasýningin Hjartastrengir og vatnsæðar í Gestastofunni
Pipakökuföndur á meðan birgðir endast í Gestastofunni
Leitin að jólasveinunum í Rafstöðinni – getur þú fundið alla þrettán jólasveinana í Rafstöðinni og leyst úr orðaflækjunni sem þeir hafa búið til? Jólastafir í boði fyrir klára krakka sem geta hjálpað þeim að leysa flækjuna.
Jólamatseðill á Elliða
Jólatrjáasala Hjálparsveitar skáta við Gestastofu Elliðaárstöðvar 10 – 21