Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

#

JÖTUNGÍMA KVEÐUR

Jötungíma er sjarmerandi risasveppur sem hefur komið sér fyrir í steyptum turni í Elliðaárdal. Sveppurinn stendur frammi fyrir óbærilega leiðinlegu verkefni, að melta, flokka og endurvinna mannkynið og leifar þess.

Vandamálið er að hann bara nennir því alls ekki.

Díó er stofnað af sviðslistakonunum Aðalbjörgu Árnadóttur og Ylfu Ösp Áskelsdóttur en þær hafa báðar starfað við atvinnusviðslistir í 20 ár. Markmið Díó er að gefa hversdagsleikanum epískan blæ og leika sér með sagnfræðilegar og persónulegar heimildir. Fyrri sýningar DÍÓ, Piparfólkið og Þær spila blak Hallelúja, fengu mjög góðar viðtökur, lofsamlega dóma gagnrýnenda og tilnefningar til Grímuverðlauna.

Í sýningunni er hávær tónlist á köflum og skaðlaus leikhúsreykur

Jötungíma: Hannes Óli Ágústsson

Leikstjórn og yfirumsjón með handriti:
Aðalbjörg Þóra Árnadóttir og Ylfa Ösp Áskelsdóttir

Ljósahönnuður: Ólafur Ágúst Stefánsson

Leikmynda- og búningahönnuður: Brynja Björnsdóttir

Kóreógrafía: Saga Kjerúlf Sigurðardóttir og DÍÓ

Hljóðhönnuður: Baldvin Magnússon

Framkvæmdastjórn: Davíð Freyr Þórunnarson – MurMur productions

Animation og myndhönnun fyrir vörpun: Steinar Júlíusson

Myndun og vinnsla kynningarefnis: Björgvin Sigurðarson

Aðstoð við útlit leikara á kynningarefni: Sara Friðgeirsdóttir

Grafísk hönnun á kynningarefni: Rakel Tómasdóttir

Hugmynd og verkstjórn: Aðalbjörg Árnadóttir

Framleiðsla: Díó í samstarfi við MurMur productions og Elliðarárstöð

Verkið er unnið í samsköpunarvinnu alls listræna teymisins og styrkt af Sviðslistasjóði.

Aðrir viðburðir