Lærðu um ferðalag vatnsins í Elliðaárstöð
-
Aðgangur ókeypis
-
21. mars - 22. mars 2026
-
12:00
Komdu og lærðu um ferðalag vatnsdropans. Í tilefni af Alþjóðlegum degi vatnsins þann 22. mars er ykkur boðið á vísindasýninguna Hjartastrengir & vatnsæðar laugardag og sunnudag milli kl. 12-16.
Kynntu þér ferðalag orkunnar og skoðaðu hvernig blágrænar ofanvatnslausnir hjálpa vatninu að renna náttúrulegri leið út í hringrásina. Frítt inn!
🕛 Opið kl. 12–16
📍 Elliðaárstöð
Viðburðurinn er hluti af ICEWATER-verkefninu sem styður við fræðslu og vitund um vatn og vatnsvernd.