Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

#

Vorið vaknar í Elliðaárstöð // HönnunarMars 2026

Handhafar Hönnunarverðlauna Íslands 2025 sameina krafta sína og bjóða gestum HönnunarMars upp á fjölbreytta og lifandi dagskrá í Elliðaárstöð sunnudaginn 10. maí, kl. 13:00 – 15:00. Þar koma saman Elliðaárstöð – staður ársins, Fischersund – verk ársins og Lauf – vara ársins.

Áhersla verður lögð á sköpun, samveru og upplifun þar sem gestir á öllum aldri geta tekið virkan þátt í fjölbreyttri dagskrá eða einfaldlega notið þess að vera í fallegu og söguríku umhverfi Elliðaárstöðvar.

Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi, með sérstakri áherslu á áhrif þeirra á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni.

Frekari upplýsingar um verðlaunahafana má finna hér


Dagskrá í Elliðaárstöð:

➞ Lauf
Samhjól frá Lauf Cycles á Grandagarði 1b. Förum af stað kl. 12.00 og hjólum á léttum hraða Reykjavíkurhringinn að Elliðaárstöð.

Lauf býður svo gestum að prófa hjólin í Elliðaárstöð frá kl. 13:00 – 15:00.

➞ Fischersund
Ilm – fjölskylduratleikur á útisvæði Elliðaárstöðvar í boði Fischersund frá kl. 13:00 – 15:00.

➞ Elliðaárstöð
Þverfaglega hönnunarteymið Terta býður upp á leiðsögn um svæði Elliðaárstöðvar þar sem gestir fá innsýn í hönnunarnálgun teymisins við uppbyggingu og mótun svæðisins. Hönnunarteymið tekur á móti gestum við Vatnsleikjagarð Elliðaárstöðvar kl. 13:30.

Vatnsleikjagarðurinn verður opinn yfir daginn þar sem börn jafnt sem fullorðnir geta buslað saman.
Öll í bátana! – barnamenningarhönnuðurinn Ninna Þórarinsdóttir leiðir nýsköpunarsmiðja fyrir börn í Gestastofu Elliðaárstöðvar frá kl. 13:00 – 15:00.
Kaffihúsið Elliði opið frá kl. 11:00 – 17:00.

Aðrir viðburðir