Listahátíð

Elliðaárdalurinn er uppfullur af lífi og nýjum ævintýrum sem breytast dag frá degi.

Á Listahátíð höldum við fjölskylduhátíð í Elliðaárstöð. Listafólk fyllir svæðið af töfrum og dýpkar tengsl okkur við náttúruna í gegnum listrænar uppákomur og viðburði.

Skoða nánar

Gestastofa

Í Gestastofu Elliðaárstöðvar má finna vísindasýninguna Hjartastrengir og vatnsæðar.

Hvernig virkar borgin okkar á bak við tjöldin? Á þessari skemmtilegu vísindasýningu kynnist þú ferðalagi orkunnar og lærir um orku og vísindi. Sýningin er ætluð börnum á öllum aldri.

Skoða nánar

Heimili veitna

Heimili veitna er sýning sem hefur verið sett upp í gamla Stöðvastjórahúsinu. Þar er boðið upp á ýmsar þrautir, leiki og hljóðleiðsögn um forvitnileg rými hússins. Sýningin varpar ljósi á veiturnar sem annars eru okkur ósýnilegar.

Vatnsleikjagarður

Vatni verður hleypt á hinn geysivinsæla Vatnsleikjagarð á sumardaginn fyrsta. Vatnið flæðir svo um garðinn í allt sumar.

Garðurinn er eftirlýking af Elliðaánum. Þá er rennibrautin sjálf Árbæjarstíflan og Elliðaárhólminn er hóllinn sem áin rennur sitt hvoru megin við.

Leitin að orkunni

Útiratleikur um svæði Elliðaárstöðvar.

Fylgdu korti og finndu 10 stöðvar þar sem hægt er að læra um orku, vísindi og veitukerfi borgarinnar. Tilvalið fyrir fjölskyldur með börn á öllum aldri.

Ef farið er í leikinn á opnunartíma er hægt að fá bækling til þess að skrá niður svör í Gestastofu Elliðaárstöðvar.

Skoða nánar

Kaffihúsið

Kaffihúsið Elliði er opið í sumar þriðjudag til sunnudags kl. 11-17.

Skoða nánar

Barnamenningarhátíð

Þann 26. apríl fögnum við barnamenningarhátíð í Elliðaárstöð. Í Gestastofu Elliðaárstöðvar verður haldin smiðjan Lifandi vídjódýr með Steinunni Eldflaug. Börn taka þátt í því að búa til dýr sem bregðast við hljóði.

Skoða nánar

Hönnunarmars

Vorið vaknar í Elliðaárstöð er viðburður þar sem handhafar Hönnunarverðlauna Íslands 2025 sameina krafta sína og bjóða gestum HönnunarMars upp á fjölbreytta og lifandi dagskrá í Elliðaárstöð sunnudaginn 10. maí.

Skoða nánar

Listahátíð

Elliðaárdalurinn er uppfullur af lífi og nýjum ævintýrum sem breytast dag frá degir.

Á Listahátíð höldum við fjölskylduhátíð í Elliðaárstöð. Listafólk fyllir svæðið af töfrum og dýpkar tengsl okkur við náttúruna í gegnum listrænar uppákomur og viðburði.

Skoða nánar

Dagskrá

Auk viðburðanna hér fyrir ofan eru oft spennandi smiðjur og viðburðir á svæðinu. Fylgstu með dagskránni á vefnum okkar og samfélagsmiðlum.

Dagskrá