Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

HönnunarMars í Elliðaárstöð

13. maí 2026

Á HönnunarMars var boðið upp á fjölbreytta og lifandi dagskrá í Elliðaárstöð þar sem hönnun, tónlist og miðlun mættust á einstöku svæði. Viðburðir vikunnar endurspegluðu ólíkar nálganir að hönnun og sköpun.

Á þriðjudeginum sýndu nemendur á fyrsta ári í vöruhönnun við LHÍ verkefni sín á sýningunni Uppspretta, þar sem sýndur var afrakstur námskeiðsins „Hönnun í samhengi“. Nemendur unnu verkefni í tengslum við LifeIcewater. Verkefnin eru fjölbreytt samansafn verka sem kanna kerfi og möguleika vatnsins út frá mismunandi sjónarhornum.

Á laugardeginum tók við sjónrænn tónlistaviðburður frá BigBoy Global í Turninum. Gestir sýningarinnar fengu að upplifa nýtt hljóðverk sem varð til á staðnum.

Vikan náði síðan hápunkti á sunnudeginum þegar viðburðurinn Vorið vaknar í Elliðaárstöð var haldinn. Þar komu saman handhafar hönnunarverðlauna Íslands 2025, Lauf Cycles, Fischersund og Elliðaárstöð. Fischersund bauð upp á ilmratleik en í tveir heppnir þáttakendur, Friðgeir Einarsson og Þröstur Margrétar Tryggvason, unnu til veglegra verðlauna. Þá var hægt að prófa einstök rafmagnshjól frá Lauf Cycles en það vakti mikla lukku meðal gesta. Hönnunarteymið Terta fór með áhugasaman hóp í leiðsögn um svæðið þar sem sagt var frá hvernig þverfaglegt hönnunarteymi fer að því að hanna einstakan áfangastað í hjarta borgarinnar þar sem hið ósýnilega er gert sýnilegt. Í borholuhúsi Carbfix var sett upp glæsileg sýning sem varpaði ljósi á það mikilvæga starf sem þau sinna við steingervingu koldíoxíðs.

Gestir hjóluðu, þefuðu, skoðuðu og nutu DJ- tóna í rigningunni.

Í Gestastofunni var sett upp sýning sem segir frá handhöfum hönnunarverðlaunanna en hún stendur fram til 19. maí.

Um 1200 gestir gerðu sér leið í Elliðaárstöð á HönnunarMars og við þökkum góðum gestum kærlega fyrir komuna.

Auk þess sem stemmingin var áþreifanlega alla vikuna í Elliðaárstöð fóru Margrét Hugadóttir, leiðtogi Vísindamiðlunar hjá Orkuveitunni og Magnea Guðmundsdóttir arkitekt í hönnunarteyminu Tertu með erindi á Design talks í Hörpu. Þar töluðu þær bæði um hvernig svæðið var hannað og hvernig það er nýtt í dag.

Aðrar fréttir