Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Auðlindahringur 2026 – Rafveituhringur

9. september 2026

🚵🏼‍♀️ Auðlindahringur frá Elliðaárstöð verður hjólaður í tilefni af evrópskri samgönguviku.

Komdu með í Rafveituhring sem er Auðlindahringur sem hjólaður er frá Elliðaárstöð. Auðlindahringir Elliðaárstöðvar er geysivinsæl viðburðaröð, þar sem auðlindasérfræðingar Orkuveitunnar leiða þátttakendur í hjólaleiðsögn um auðlindir og innviði höfuðborgarsvæðisins.

Vissir þú að í dreifikerfi Veitna eru yfir 3.000 km af rafstrengjum og vel yfir 1.000 spennar sem spanna spennustig frá 230V upp í 132kV, allt tengt saman í flókið net til að koma raforku til viðskiptavina?

⚡️17. september bjóðum við upp á Rafveituhringinn sem er ca. 25 km hjólahringur, mestmegnis á malbiki og möl. Skoðað verða lykil mannvirki í flutning og dreifingu rafmagns og fræðst um það hvernig raforka kemst frá virkjun til viðskiptavina.

⚡️Þátttakendur eru beðnir um að mæta á fjallahjólum/ malarhjólum eða raffjallahjólum kl. 17:00 við Elliðaárstöð, Rafstöðvarvegi 6. Munið að klæðast eftir veðri.

⚡️Sérfræðingar hjá Veitum leiða hjólaferðina og miðla áhugaverðum fróðleik og sögum.

⚡️Þátttaka er ókeypis og boðið verður upp á léttar veitingar á leiðinni.

⚡️Hægt er að sjá leiðina hér: https://strava.app.link/2QyX0DgklWb

Hlökkum til að sjá ykkur.

Aðrar fréttir