Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Blágræn ofanvatnslausn er snjöll lausn

11. mars 2026
Blágræn ofanvatnslausn. Teikning: Ninna Þórarinsdóttir. Myndin er hluti af fræðsluefninu Ósýnilegt verður sýnilegt.

Hvert fer regnið í borginni?

Hvert fer vatnsdropinn þegar hann fellur sem rigning á þök, götur og stéttir?

Í náttúrunni rennur vatnið niður í jörðina í gegnum jarðveginn, gras, mold, sand og sprungur í hrauni.

Í borginni hindra götur, torg, stéttir og hús þessa leið. Þá er regnvatni oft veitt í niðurföll þar sem það sameinast skólpi frá heimilum í fráveitukerfinu. Í fráveitunni er vatninu dælt áfram. Það fer í hreinsistöð og rennur síðan eftir langri lögn út í sjó.

Þegar regnvatn fer þessa leið þarf fráveitukerfið að taka við miklu meira magni af vatni en ella. Það skapar vandamál í óveðri og þegar mikið rignir. Álag á fráveitukerfið verður meira, þetta kostar tíma, orku og peninga.

Blágrænar ofanvatnslausnir eru betri lausn. Þær leyfa regnvatni að fara aftur náttúrulega leið.

Tjörnin á Veitutorgi í Elliðaárstöð er blágræn ofanvatnslausn

Á Veitutorgi rennur regnvatn af nærliggjandi þökum og stéttum í opnum rennum niður í tjörnina. Í gegnum grófan botn tjarnarinnar seytlar vatnið aftur niður í jarðveginn og inn í vatnshringrásina.

Víða í borginni má finna blágrænar ofanvatnslausnir. Stundum eru þær þannig að regnvatn rennur um niðurföll í lagnir sem leiða vatnið út í náttúruna án þess að sameinast skólpinu.

Blágrænar ofanvatnslausnir eins og þessar eru betrai fyrir vatnið, jörðina og budduna.

Tjörnin á Veitutorgi

Þessi tjörn er dæmi um blágræna ofanvatnslausn.

Þessi grein er hluti af fræðsluefni Icewater verkefnisins. Icewater er stórt samstarfsverkefni sem miðar að því að vernda gæði vatns á Íslandi.

Didda dropi.

Kynntu þér ferðalag dropans

Viltu læra meira um ferðalag orkunnar? Fræðsluefnið Ósýnilegt verður sýnilegt er aðgengilegt á vefnum. Kynntu þér ferðalag Kúksa kúks og Diddu dropa.

Ósýnilegt verður sýnilegt

Aðrar fréttir