Til baka
Nýr vefur Elliðaárstöðvar
Nýr vefur Elliðaárstöðvar hefur nú litið dagsins ljós. Hinn nýi vefur hefur formlega tekið við af þeim gamla sem þjónaði hlutverki sem upplýsingavefur verkefnisins Elliðaárstöð – nýr áfangastaður í Elliðaárdal.
Nýja vefnum er ætlað að bæta notendaupplifun, upplýsingagjöf, læsileika og aðgengi. Helstu nýjungar eru meðal annars:
- Gagnvirkt kort af svæðinu með upplýsingum um áhugaverða staði í dalnum
- Upplýsingar um viðburði, sýningar og námskeið
- Fréttir sem tengjast svæðinu
- Fróðleiksmolar um allt og ekkert í dalnum
- Opnunartímar
- Margt, margt fleira
Avista sá um vefhönnun og forritun vefsíðunnar.
Vefsíðan verður lifandi og mun þróast áfram í takt við þróun svæðisins og framkvæmdir sem nú er í fullum gangi.