Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

#

Landslagsgreining og hönnun

  • Coins Aðgangur ókeypis
  • Calendar 1. júlí - 18. ágúst 2025
  • Clock 08:30
  • Location Pin Sjá á korti
Verið hjartanlega velkomin á smástundarsýningu nemenda í landslagsarkitektúr frá Landbúnaðarháskólanum.
Sýningin fer fram í Gestastofu Elliðaárstöðvar frá 1. júlí til 18. ágúst og er opið á virkum dögum frá 8:30 – 16:30

Á sýningunni má sjá hugmyndir nemenda um hvernig Elliðaárdalurinn gæti þróast til framtíðar. Verkefnið er hluti af námskeiði í Landslagsgreiningu þar sem lögð er áhersla á að nemendur byggi hönnunarvinnu sína á vandaðri greiningu landslags og umhverfis. Hver og einn nemandi mótaði sína eigin framtíðarsýn fyrir dalinn og vann hönnunartillögu sem dregur fram sérkenni svæðisins, bregst við áskorunum og opnar fyrir möguleika í nýtingu, vernd og upplifun.

Nemendur settu sér hönnunarþema, völdu stað innan dalsins og útfærðu hugmyndir sínar bæði í stórum og smáum mælikvarða – allt frá skipulagi stígakerfa til nánari hönnunar dvalarsvæða,
fuglaskoðunarpalla, upplifunarleiða og fleira.

Með verkefninu er ætlunin að þjálfa framtíðarlandslagsarkitekta í að hugsa skapandi og röklega um samspil náttúru og mannlífs og að segja skýra og sannfærandi sögu með landslagi.

Aðrir viðburðir