Hvernig kemst kalda vatnið heim til okkar?

Hvaðan kemur vatnið?
Vatnsveitan sér til þess að borgarbúar fái hreint vatn heim til sín. Vatnsveitan sækir vatnið í vatnsból á vatnsöflunarstöðum sem eru í nágrenni borgarinnar á vatnsverndarsvæði. Vatnið kemur upp í gegnum borholu og er hraunsíað og hreint þegar það rennur heim til okkar.
Áður en Vatnsveita Reykjavíkur var stofnuð árið 1909 þurfti fólk að sækja vatn í brunna og ganga með það langar leiðir. Stundum bárust óhreinindi úr nærliggjandi kömrum í vatnið og gat það valdið sjúkdómum.
Í dag erum við svo heppin að vatnið kemur hreint og tært beint úr krananum. Víða í heiminum er staðan önnur. Um 1 af hverjum 4 í heiminum hefur enn ekki aðgang að hreinu drykkjarvatni
Vissir þú? Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna „6: Hreint vatn og hreinlætisaðstaða“ miðar að því að allir jarðarúar fái aðgang að hreinu vatn fyrir árið 2030.
Gömul rigning í krananum þínum?
Regndropi sem fellur á jörðina, til dæmis í Bláfjöllum, rennur um holrými, sprungur, hraun og berglög og sameinast vatnsmiklum grunnvatnsstraumum sem liggja neðanjarðar og eru okkur ósýnilegir frá yfirborði. Hægt er að bora eftir vatni á svona svæðum og dæla því upp úr jörðinni. Þannig er málunum háttað í höfuðborginni og er vatnið sem kemur úr krananum þegar við skrúfum frá hreint og gott hraunsíað vatn. Vatnsdroparnir geta verið á mismunandi aldri, allt frá því að vera nokkurra klukkustunda gamlir dropar sem hafa fallið sem rigning nálægt borholunum sjálfum og í það að vera nokkurra ára gamlir vatnsdropar sem hafa fallið á Bláfjallasvæðinu.
Frá vatnsöflunarstöðum rennur vatn eftir stórum vatnslögnum í dælustöðvar og miðlunartanka. Frá dælustöðvum og tönkum rennur vatnið sjálft eða því er dælt til heimila, stofnana og fyrirtækja. Í kjallara hússins, eða á fyrstu hæð er að finna vatnsinntak fyrir húsið. Þar kemur vatnið inn í húsið. Vatnslagnir liggja svo frá inntakinu að krananum.
Rannsókn: Úr hvaða vatnsbóli fær heimilið þitt vatn?

Ósýnilegt verður sýnilegt
Greinin er hluti af fræðsluefninu Ósýnilegt verður sýnilegt sem veitir okkur innsýn í hvernig veitukerfin í borginni virkar á bak við tjöldin.
Nánar